Lagarök lögmannsstofa býr yfir mikilli reynslu í skattamálum. Lögmenn stofunnar veita einstaklingum og fyrirtækjum jafnt innanlands sem og erlendis heildstæða skattaráðgjöf, vegna beinna og óbeinna skatta, alþjóðlegs skattaréttar og tvísköttunarsamninga.
Lögmenn stofunnar búa yfir sérhæfingu í málum á þessu sviði og hafa mikla reynslu á meðferð mála hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins og ágreiningsmálum hjá ríkisskattstjóra sem og málsvörnum í opinberum málum hjá dómstólum.
Lögmenn stofunnar hafa t.a.m. veitt erlendum viðskiptavinum ráðgjöf á sviði skattamála vegna málefna er lúta að orkumálum og jarðvarmavirkjunum.
Þau verkefni sem Lagarök lögmannsstofa sinnir m.a. eru eftirfarandi:
- Aðstoð vegna meðferðar skattamála hjá ríkisskattstjóra.
- Aðstoð við kærur skattamála til yfirskattanefndar.
- Skattalegar áreiðanleikakannanir.
- Aðstoð vegna virðisaukaskattsmála, svo sem vegna:
- Frjálsrar og sérstakrar skráningar.
- Rafrænnar þjónustu og sölu yfir landamæri.
- Skráningar, afskráningar og samskráningar á virðisaukaskattsskrá.
- Almennra virðisaukaskattsmála fyrirtækja.
- Aðstoða vegna meðferðar tolla og vörugjalda.
- Ráðgjöf vegna tekjuskatts, útsvars, fjármagnstekjuskatts og tryggingagjalds o.fl., svo sem vegna:
- Tekjuskattshlutföll einstaklinga og lögaðila.
- Gjaldfærðs rekstrarkostnaða í rekstri félaga.
- Staðgreiðslu skatta
- Vaxta, arðs, söluhagnaðar, leigutekna o.fl.
- Launþegasamband og verktakasamband.
- Rágjöf vegna samninga í rekstri, svo sem við kaup á félögum, hlutafé, atvinnurekstrareignum o.fl.
- Alþjóðleg skattlagning.
- Tvísköttunarsamningar.
- Milliverðlagning.
- Hagsmunagæsla vegna meðferðar mála hjá skattrannsóknarstjóra. ríkisins og sérstökum saksóknara.
- Hagsmunagæsla við meðferð sektarmála hjá yfirskattanefnd.
- Hagsmunagæsla vegna refsimála fyrir dómi.